Það er ýmislegt að fŕetta héðan. Litla
systir er reyndar ekki búin að eiga en hún var sett á síðasta
laugardag, Ætli krílið komi ekki bara á
þriðjudaginn. Að minnsta kosti veit ég um eina sem væri
alveg til að fá lítið frændsystkini í afmælisgjöf 
Um daginn þá fór ég til Hornafjarðar í
fermingu. Ég og stóri bróðir keyrðum á bílnum mínum austur á
laugardeginu og svo aftur til baka eftir ferminguna á
sunnudeginum. Það var gott að komast aðeins út úr bænum og
æðislegt veður á sunnudeginum. Flott útsýni yfir á jökul, og
ég naut þess að sitja í bílnum á meðan stóri bróðir keyrði.
Svo tók ég við í Vík og keyrði það sem eftir var leiðarinar.
Var reyndar mjög þreytt enda var farið að dimma þegar ég tók við.
Það var reyndar gert grín af mér því ég var með eitthverja
pest og þetta var annað árið í röð að ég fer í fermingu austur og
með pest. Næsta ferming er svo eftir 4 ár og þá er eins gott
að ég verði ekki með pest. Fór svo aftur í fermingu á skírdag
en þá var verið að ferma hjá vinkonu minni.
Já, heilsan ætlar ekki að lagast en er
búin að fara til læknis og búin að fá niðurstöðurnar. Ég þarf
víst að fara í hálskirtlatöku. Er ekki búin að fá dagsetningu
á aðgerðinni en hún verður vonandi sem fyrst. Læknirinn
lofaði mér því að hún verði að vísu ekki fyrr en eftir
Englandsferðina mína. Ég verð víst frá vinnu í 10 daga og var
að pæla í því að skreppa vestur á meðan ég er að jafna mig.
Er ekki voða spennt fyrir því að hanga ein heima á meðan á þessu
stendur.
Já, ég er að fara til Englands eftir
nokkra daga. Flest allir í vinnunni eru að fara og það verður
vonandi mjög gaman. Ætla að versla að mestu fyrir
systkinabörnin en hver veit nema að ég kaupi eitthvað fyrir sjálfa
mig líka.
Jæja, ég hef ekki meira að segja.
Þar til næst - ciao